head756.jpg
Forsíða
Fréttir
Um Gunnar
Fyrirspurn
Myndir
Allt um prófkjörið
Áherslumál
Spurningar og svör
Greinar





Fréttir
Kraftur og bjartsýni inn í framtíðina 20. febrúar 2010

Kraftur og bjartsýni inn í framtíðina

Í dag verður kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og hefur kosningabaráttan verið spennandi og gefandi. Ég og mitt stuðningsfólk höfum haft það að leiðarljósi að heyja heiðarlega kosningabaráttu sem er umfram allt málefnaleg. Ég hef farið fram á mínum eigin verðleikum og þeim verkum sem ég hef staðið fyrir. Við höfum metið það ofar öðru að halda reisn okkar í kosningabaráttunni og höfum ekki látið misjafnt orð falla um keppninauta okkar þetta er allt saman prýðisfólk og á ekkert misjafnt skilið.

Kæru Kópavogsbúar nú meira en áður þurfum við jákvæða og framsækna sýn inn í framtíðina. Við þurfum að stefna að áframhaldandi vexti og umfram allt að halda uppi þeirri góðu þjónustu við íbúa sem veitt hefur verið hingað til. Umfram allt þarf að skapa fleiri störf í bæjarfélaginu til að við náum okkur sem fyrst út úr þrengingunum.

Ég mun leggja mig allan fram að vinna fyrir Kópavog og Kópavogsbúa sem ég hef gert undanfarin 20 ár og bið ég þig ágæti Kópavogsbúi um áframhaldandi stuðning í leiðtogasæti Sjálfstæðisflokksins.

Ég trúi því að það sé gott að búa í Kópavogi og verði það um ókomna tíð.


Með virðingu og vinsemd,
Gunnar Ingi Birgisson
frambjóðandi



Fyrrum alþingismaður Guðmundur Hallvarðsson kom í heimsókn 18. febrúar 2010














Fyrrum alþingismaður Guðmundur Hallvarðsson kíkti á kosningaskrifstofu Gunnars og hvatti hann til dáða.
Mikill áhugi er á því að kíkja til Gunnars í heimókn enda auðvelt að hitta á hann þar sem karlinn er kominn á kosningaskrifstofuna um 10:00 leytið og er til 22:00 á kvöldin.


Það eru allir velkomnir í heimsókn og það er alltaf heitt á könnunni.

Stuðningsmenn
Uppbygging íþróttasvæðis HK 18. febrúar 2010
Samningaviðræður hafa staðið milli Knattspyrnakademíunnar og Kópavogsbæjar um framtíð þessa svæðis, á meðan það ástand varir er ljóst að ekki er hægt að „lofa“ einu félagi að taka yfir rekstri þessara mannvirkja. Bæði HK og Breiðablik hafa núna aðstöðu í Kórnum og munu einnig hafa aðstöðu í íþróttahúsinu sem verið er að ljúka.

Það er ekki í mínum stíl að koma með ótímabær loforð til að kaupa mér vinsældir rétt fyrir kosningar.

Ég hef lagt mig fram að byggja upp íþróttamannvirki í Kópavogi undanfarna tvo áratugi og hefur HK ekki farið varhluta af þeirri uppbyggingu sem hefur elft félagið og gert það að einu öflugasta og framsæknasta íþróttafélagi landsins.



Mikill áhugi er fyrir því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn 17. febrúar 2010
Mikill áhugi er fyrir því að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og er það mest megnis fólk "af götunni" sem heimsækir Gunnar og skráir sig í leiðinni. Fólk er sammála um að það vilji ekki missa Gunnar úr bæjarstjórn því hann sé einn af þeim sem mun áfram geta haldið uppi góðu þjónustustigi en sparað í leiðinni í útgjöldum.


Góðir gestir úr Reykjavík 15. febrúar 2010


Góðir gestir úr Reykjavík kíktu á Gunnar á kosningaskrifstofuna í kvöld. Kátt var á hjalla og hvöttu þau Gunnar til frekari dáða í Kópavogi.
Stútfull rúta 13. febrúar 2010
Gunnar Birgisson tók á móti hressu fólki á laugardaginn og var ekið um Kópavog undir leiðsögn Gunnars og fór hann m.a. yfir skipulags- og atvinnumál í nútíð og framtíð. Að leiðsögn lokinni var boðið uppá kökur og kaffi á kosningaskrifstofu Gunnars.


Húsfyllir var þegar Gunnar kynnti framtíðarskipulag Kópavogs 13. febrúar 2010
Föstudaginn 12. febrúar boðaði Gunnar Birgisson aðila byggingargeirans og fasteignasala á fund við sig þar sem hann kynnti fyrir þeim skipulag Kópavogsbæjar í nútíð og framtíð. Húsfyllir var á samkomunni eða yfir 100 manns.




Vilt þú hjálpa til við hringingar eða annað? 10. febrúar 2010
Ef þú vilt styðja við Gunnar getur þú komið á kosningaskrifstofu Gunnars að Dalvegi 6-8 og hringt í vini og vandamenn. Við útvegum símana, kaffi og meðlæti.

Allir áhugasamir eru beðnir um að senda okkur póst á gunnarbirgisson@gunnarbirgisson.is eða bara að mæta.

Kær kveðja,
Stuðningsmenn
Gunnar býður Kópavogsbúum í rútuferð um bæinn - laugardaginn 13. febrúar 9. febrúar 2010

Næstkomandi laugardag klukkan 14:00 verður ekið um Kópavog undir leiðsögn Gunnar Birgissonar. Að leiðsögn lokinni verður boðið uppá kaffiveitingar á kosningaskrifstofu Gunnars.
Farið verður frá Dalvegi 6-8 klukkan 14:00 og tekur rútuferðin rúmlega eina klukkustund.

Við hvetjum áhugasama að mæta og gott væri að fá staðfestingu á netfanginu gunnarbirgisson@gunnarbirgisson.is .
Nú geta áhugasamir gerst vinir Gunnars á Fésbókinni 7. febrúar 2010
Stuðningsmenn- og konur Gunnars benda áhugasömum á að gerast vinir Gunnar Birgissinar á netinu og hvetja þá einnig til að dreifa síðunni á sem flesta. Þar inni er hægt að nálgast ýmis myndskeið og málefni Kópavogs svo og myndir. Leitarorð er "Gunnar Birgisson" eða fara beint inn á síðuna http://www.facebook.com/group.php?v=photos&ref=nf&gid=314967822773#!/group.php?v=wall&gid=314967822773 .

Skemmtileg og lifandi síða fyrir áhugasama!
Frétt 5. febrúar 2010
Opnun kosningaskrifstofu Gunnars I. Birgissonar, að Dalvegi 6-8, laugardaginn 6. febrúar frá klukkan 16:00. Allir hjartanlega velkomnir. Boðið verður uppá kökur og kaffi.
Frábær mæting á kosningakaffi 4. febrúar 2010
Metfjöldi var við opnun kosningaskrifstofu Gunnars að Dalvegi 6-8 í gær. Yfir 200 manns mættu og gæddu sér á veigum. Jón Gunnarsson alþingismaður hélt ræðu og þakkaði Gunnari fyrir að koma Kópavogi á kortið. Einnig nefndi hann að ef Kópavogsbúar kysu hann fengju þeir ekki nema hluta af honum þar sem hann hafi grennst um heil 30 kíló og sé víst rétt byrjaður á heilsuátakinu sínu. Hver veit nema hann taki þátt í Þrekmeistaranum á næsta ári.

Við minnum fólk á að kíkja á kosningaskrifstofuna og þiggja veitingar. Skrifstofan verður opin eftir klukkan 12:00 alla virka daga og á laugardögum frá klukkan 10:00.

Baráttukveðjur,
Stuðningsfólk
Netfangið þitt:
Skrá netfang
Afskrá netfang
Sjá öll myndskeið
© 2003-2010 · Gunnar Birgisson · gunnarbirgisson@gunnarbirgisson.is